Austurríski varnarmaðurinn David Alaba leikur ekki með Bayern München í þýsku knattspyrnunni eða Meistaradeild Evrópu næstu vikurnar en hann meiddist í hné í vináttulandsleik Austurríkis gegn Bosníu.
Talið er að hann verði frá keppni í sex til átta vikur og hann missir af leikjum Bayern á lokasprettinum í þýsku 1. deildinni, þar sem liðið er með tíu stiga forskot, í þýsku bikarkeppninnni þar sem Bayern mætir Leverkusen í átta liða úrslitum í næstu viku, og í Meistaradeild Evrópu þar sem Bayern mætir Porto í átta liða úrslitum 15. og 21. apríl.
Alaba, sem er 22 ára gamall, hefur spilað 31 leik með Bayern í vetur og skorað fimm mörk.