Ronaldo með tvö gegn Málaga

Pepe og Cristiano Ronaldo fagna þriðja markinu í kvöld.
Pepe og Cristiano Ronaldo fagna þriðja markinu í kvöld. AFP

Real Madrid heldur sig áfram tveimur stigum á eftir Barcelona í einvíginu um spænska meistaratitilinn í knattspyrnu eftir sigur á Málaga í kvöld, 3:1.

Barcelona, sem vann Valencia, 2:0, fyrr í dag, er með 78 stig en Real Madrid er með 76 og Atlético Madrid, sem vann Deportivo La Coruna 2:1 á útivelli er með 69 stig í þriðja sætinu.

Sergio Ramos og Cristiano Ronaldo komu Real Madrid í 2:0 en Juanmi minnkaði muninn fyrir Málaga. Ronaldo innsiglaði sigurinn með sínu öðru marki í uppbótartíma leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert