Telur að Casillas fari hvergi

Iker Casillas.
Iker Casillas. AFP

Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir að hann sé fullviss um að markvörðurinn reyndi Iker Casillas verði áfram hjá félaginu og ljúki líklega ferli sínum hjá sínu uppeldisfélagi.

David de Gea hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid, nú síðast í enskum fjölmiðlum í morgun. Ancelotti hefur ekkert gefið út á það en segir að Casillas sé líklegur til að spila lengi enn.

„Casillas er með mjög skýra mynd um sína framtíð. Ég er viss um að hann verður áfram hjá Real Madrid. Ég myndi ekki velja hann nema  vegna þess að hann er besti markmaðurinn okkar. Þjálfarinn ákveður þetta, rétt eins og í fyrra þegar hann spilaði lítið, þá var það ákvörðun þjálfarans. Við fylgjumst með æfingunum og veljum svo þann sem er bestur," sagði Ancelotti við spænsku útvarpsstöðina esRadio.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert