Við höfum Messi

Javier Mascherano í baráttu við hinn grímuklædda Robert Lewandowski í …
Javier Mascherano í baráttu við hinn grímuklædda Robert Lewandowski í leiknum í kvöld. AFP

„Við höfum Messi, það veitir okkur forskot,“ sagði Javier Mascherano, leikmaður Barcelona, við Sky Sports í kvöld eftir 3:0 sigur síns liðs gegn Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

„Þetta var mjög jafn og erfiður leikur, en við fengum betri tækifæri til þess að skora. Ég held að við höfum spilað eins og við vildum spila, við erum virkilega ánægðir,“ sagði Mascherano.

„Nú vitum við hversu erfitt þetta verður í Þýskalandi, þetta forskot er gott en þetta er ekki búið. Við þurfum að vera andlega tilbúnir og fara með sama hugarfar í þann leik og við fórum í þennan. Við vissum að Pep (Guardiola) myndi vilja vinna á hvaða velli sem er, á hvaða leikvangi sem er og þeir komu inn í leikinn með mikla pressu. En stundum þegar þú gerir það þá tekurðu áhættu, og við vissum að við höfðum marga frammi sem hafa gæði til þess að gera gæfumuninn,“ sagði Mascherano.

Sjáðu mörkin hjá Messi hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert