Hinn afar hárprúði varnarmaður, David Luiz, gagnrýnir fjölmiðla erlendis og sakar þá um virðingaleysi eftir að hafa gert mikið úr ummælum hans á samskiptavef Instagram á dögunum.
Luiz, sem er 28 ára gamall, er á mála hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi, en hann kom til félagsins síðasta sumar frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea.
Brasilíski varnarmaðurinn er mikill brandarakall, en hann ákvað í gríni að birta mynd af sér í sundlaug landa síns, Maxwell, á Instagram og skrifaði hann undir myndina að hann ætlaði sér ekki að stunda kynlíf fyrir giftingu.
Á myndinni má sjá Luiz ásamt tveimur öðrum karlmönnum standa í sundlaug í miðri skírnarathöfn, en myndin er tekin heima hjá Maxwell.
Ummælin fóru eins og eldur í sinu á netmiðlum, en Luiz var óánægður með fjölmiðla.
,,Ég er ekki hreinn sveinn. Ég hef átti fleiri en eina kærustu í lífi mínu,“ sagði Luiz við BBC.
„Sumt fólk í fjölmiðlum virðir ekki annað fólk. Ég get farið sáttur að sofa á hverju kvöldi og átt væran svefn því ég virði alla,“ sagði Luiz að lokum.