Fékk hjartaáfall í leik og lést

Argentínski knattspyrnumaðurinn Cristian Gomez lést eftir að hafa fengið hjartaáfall í leik með liðinu Atletico Parana í gær.

Gomez, sem var 27 ára gamall, hné niður eftir hálftímaleik í leik gegn Boca Unidos í argentínsku B-deildinni og lést á leið á sjúkrahús en leikurinn var flautaður af í kjölfarið.

Fyrir tíu dögum síðan lést argentínski knattspyrnumaðurinn Emanuel Ortega af sárum sínum eftir að hafa skollið með höfuðið harkalega utan í steinvegg sem var í kringum völlinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert