Sá „gamli“ gæti orðið markakóngur

Luca Toni.
Luca Toni. AFP

Hinn 37 ára gamli Luca Toni samherji Emils Hallfreðssonar í liði Hellas Verona á möguleika að verða markakóngur ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu í ár.

Toni skoraði eitt mark í dag þegar Verona gerði 2:2 jafntefli við Parma. Þetta var 20. mark hans í deildinni á tímabilinu og hann er markahæstur ásamt Carlos Tévez, Juventus, og Mauro Icardi framherja Inter. Ein umferð er eftir af deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert