Hné niður og missti meðvitund (myndskeið)

Samherji Matheus hlúir hér að leikmanninum eftir að hann féll …
Samherji Matheus hlúir hér að leikmanninum eftir að hann féll meðvitundarlaus í grasið. AFP

Undir lok leiks Sevilla og Dnipro í úrslitaleik Evrópudeildar UEFA í Varsjá í kvöld hné Brasilíumaðurinn Matheus, leikmaður Dnipro, í grasið nokkru eftir að hafa farið í skallaeinvígi við einn liðsmann Sevilla.

Matheus fékk greinilega vænt högg á höfuðið en hann hélt áfram en skömmu síðar hné hann niður meðvitundarlaus. Læknar og sjúkralið voru fljótir að bregðast við og komu leikmanninum til meðvitundar en myndband af þessu atviki má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert