Talsverðar líkur virðast á því að Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Real Sociedad á Spáni, sé á leið til gríska félagsins PAOK Saloniki sem lánsmaður í eitt ár.
Þetta hefur komið fram í grískum fjölmiðlum í dag og grískur íþróttafréttamaður sem mbl.is ræddi við taldi að málið væri langt komið.
Alfreð var keyptur til Real Sociedad frá Heerenveen í Hollandi síðasta sumar en náði ekki að festa sig í sessi á sínu fyrsta tímabili á Spáni. Hann lék 25 af 38 deildaleikjum liðsins, aðeins fimm þeirra í byrjunarliði, og skoraði tvö mörk.