Chicharito viðbeinsbrotnaði

Javier Hernandez.
Javier Hernandez. AFP

Mexíkóski framherjinn Javier Hernandez, oft kallaður Chicharito, varð fyrir því óláni að viðbeinsbrotna í vináttuleik með Mexíkó gegn Hondúras.

Hernandez er á mála hjá Manchester United en lék sem lánsmaður með Real Madrid á síðustu leiktíð. Hann hefur skorað 59 mörk í 154 leikjum með United en líklegt þykir að hann yfirgefi herbúðir Manchester-liðsins í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert