Söderlund hetja Rosenborg

Lið Rosenborg fagnar marki. Fyrir miðju er Íslendingurinn Hólmar Örn …
Lið Rosenborg fagnar marki. Fyrir miðju er Íslendingurinn Hólmar Örn Eyjólfsson. Ljósmynd/Truls Lereggen

Rosenborg endurheimti í kvöld sjö stiga forskot á toppi norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 3:2 sigri gegn Sarpsborg á Lerkendal vellinum í Þrándheimi.

Alexander Söderlund, fyrrverandi leikmaður FH, tryggði Rosenborg sigurinn þegar hann skoraði sigurmarkið sex mínútum fyrir leikslok. Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan síðari hálfleikinn fyrir Rosenborg en nýjasti leikmaður liðsins, Matthías Vilhjálmsson, sat á bekknum allan tímann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert