Þriðja tap Barcelona í röð

Luis Suárez skoraði mark Barcelona.
Luis Suárez skoraði mark Barcelona. AFP

Spánar- og Evrópumeistarar Barcelona töpuðu sínum þriðja leik í röð þegar þeir biðu lægri hlut fyrir Fiorentina, 2:1, á International Champions Cup mótinu í kvöld.

Federico Bernardeschi skoraði tvö mörk fyrir Fiorentina á fyrstu 12 mínútum leiksins en Luis Suárez minnkaði muninn fyrir Börsunga á 17 mínútu og þar við sat.

Enginn Lionel Messi né Neymar voru í liði Barcelona en þeir fengu lengra frí vegna þátttöku í S-Ameríkukeppninni í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert