Werder Bremen vill fá Aron

Aron Jóhannsson í leik með bandaríska landsliðinu.
Aron Jóhannsson í leik með bandaríska landsliðinu. AFP

Þýska blaðið Bild greinir í kvöld að þýska liðið Werder Bremen hafi augastað á Aroni Jóhannssyni, landsliðsmanni Bandaríkjanna.

Aron er á mála hjá hollenska liðinu AZ Alkmaar og því er fram kemur í Bild eru félögin í samningaviðræðum um kaupverðið.

AZ Alkmaar hefur settt 5 milljón evra verðmiða á Aron sem hefur leikið með hollenska liðinu frá árinu 2013 en hann kom til liðsins frá danska liðinu AGF.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert