Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson átti góðan leik þegar Hellas Verona gerði 1:1 jafntefli við Roma í fyrstu umferð efstu deildarinnar á Ítalíu um síðustu helgi. Emil var var verðlaunaður fyrir frammistöðu sína inni á miðsvæðinu í þessum leik með því að vera valinn í lið umferðarinnar.
Emil lagði upp mark Hellas Verona í leiknum gegn Roma með frábærri sendingu inn á vítateiginn og sýndi auk þess góða takta.
Emil Hallfreðsson verður að öllum líkindum í íslenska landsliðshópnum sem mætir Hollandi og Kasakstan í haust, en landsliðshópurinn verður tilkynntur í næstu viku.