Emil fór meiddur af velli

Emil Hallfreðsson með boltann.
Emil Hallfreðsson með boltann. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Emil Hallfreðsson fór meiddur af velli hjá Hellas Verona sem tapaði 2:0 á útivelli fyrir Genoa í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Emil var að vanda í byrjunarliði liðsins í leiknum, en var skipt af velli strax á 22. mínútu. Samkvæmt fyrstu fréttum meiddist hann á vinstra hné og var þjáður þegar honum var skipt útaf.

Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir íslenska landsliðið, en liðið mætir Hollandi og Kasakstan á fimmtudag og sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert