Guðmundur skoraði sárabótarmark

Guðmundur Kristjánsson.
Guðmundur Kristjánsson. Ljómynd/ikstart.no

Guðmundur Kristjánsson skoraði sárabótarmark fyrir Start þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Haugesund, 3:1, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Guðmundur minnkaði muninn einni mínútu fyrir leikslok, en hann lék allan leikinn fyrir Start sem er í þrettánda sæti deildarinnar með nítján stig eftir 22 leiki.

Þá gerðu lærisveinar Rúnars Kristinssonar hjá Lilleström 2:2 jafntefli við Molde á útivelli. Árni Vilhjálmsson sat allan tímann á bekknum en Finnur Orri Margeirsson var ekki með Lilleström sem er með 29 stig um miðja deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert