Tíunda landsliðsmarkið hjá Gylfa

Gylfi fagnar marki sínu í kvöld.
Gylfi fagnar marki sínu í kvöld. AFP

Markið sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði í kvöld þegar hann tryggði Íslendingum sigurinn gegn Hollendingum í Amsterdam var hans tíunda fyrir íslenska landsliðið.

Gylfi var að spila sinn 31. landsleik í kvöld og skoraði sitt 5. mark í undankeppni Evrópumótsins og er hann markahæstur af íslensku leikmönnunum. Hin 10 mörkin í undankeppninni hafa skorað þeir: Kolbeinn Sigþórsson 2, Aron Einar Gunnarsson 2, Birkir Bjarnason 2 og þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Rúrik Gíslason, Jón Daði Böðvarsson og Ragnar Sigurðsson hafa skorað 1 mark hver.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert