Guðbjörg hélt hreinu í Meistaradeildinni

Guðbjörg Gunnarsdóttir
Guðbjörg Gunnarsdóttir mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir hélt marki sínu hreinu í 32 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. 

Lilleström hafði betur 1:0 gegn svissneska liðinu Zürich í Noregi en liðin eiga eftir að mætast aftur í Sviss.

Liðið verður þar án framherjans Lehn Herlovsen sem nældi sér í rautt spjald hjá rússneskum dómara leiksins eftir að leikurinn var flautaður af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert