Balotelli stríðir stuðningsmönnum United

Mario Balotelli fagnar marki sínu á eftirminnilegan hátt í 6:1 …
Mario Balotelli fagnar marki sínu á eftirminnilegan hátt í 6:1 sigri á Manchester United. AFP

Mario Balotelli, fyrrum leikmaður Manchester City á Englandi, er orðinn spenntur fyrir stórleik helgarinnar í enska boltanum en fyrrum lið hans mætir þá nágrönnunum í Manchester United.

Ítalski framherjinn lék með Manchester City frá árunum 2010 til 2013 áður en hann fór aftur til AC Milan. Hann samdi við Liverpool á síðasta ári en var lánaður aftur til Milan í sumar eftir slakt tímabil á Englandi.

Hann ákvað þó að taka þátt í upphitun fyrir leik Manchester City og Manchester United um helgina með því að minnast þess er City vann United 6:1. Balotelli skoraði tvö mörk og fagnaði eftirminnilega með því að sýna bol sem stóð á „Why Always Me?“.

Balotelli birti mynd af sigrinum á Instagram en myndina má sjá hér fyrir neðan.

<div> <div></div> </div>

<a href="https://instagram.com/p/9LYu_FLjxh/" target="_blank">Who can forget this? #unforgettable #daretozlatan 😂✋🏾 💙💙💙</a>

A photo posted by Mario Balotelli🇮🇹🗿👪 (@mb459) on Oct 23, 2015 at 4:09am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert