Fulop er látinn

Martin Fulop.
Martin Fulop. AFP

Ungverski markvörðurinn Marton Fulop er látinn aðeins 32 ára gamall. Banamein hans var krabbamein sem hann hefur barist við undanfarin ár.

Fulop lék 24 landsleiki fyrir Ungverja, þann síðasta fyrir fjórum árum, og þá lék hann með Tottenham, Sunderland, Ipswich, Coventry,  Manchester City og WBA á ferli sínum.

Fulop greindist með æxli í handlegg fyrir nokkrum árum síðan. Hann var á batavegi en fyrir tveimur árum neyddist hann til að setja markmannshanskana á hilluna. Síðasta liðið sem hann spilaði með var gríska liðið Asteras Tripoli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert