Buffon hættir eftir HM

Gianluigi Buffon.
Gianluigi Buffon. AFP

Ítalski markvörðurinn magnaði Gianluigi Buffon sagði í viðtali í dag að hann hygðist leggja skóna á hilluna í síðasta lagi eftir HM í Rússlandi árið 2018.

„Ég ætla að reyna að ná næsta heimsmeistaramóti. Þá er væntanlega kominn tími á að loka dyrunum,” sagði Buffon við fjölmiðla í dag en hann verður 38 ára gamall í janúar.

Buffon varð heimsmeistari með Ítölum árið 2006 og hefur leikið undanfarin ár með Juventus þar sem hann hefur unnið sex Ítalímeistaratitla en hann hóf feril sinn hjá Parma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert