Barcelona vann sigur á Levante, 2:0, í efstu deild spænsku knattspyrnunnar í dag.
David Navarro varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir 21 mínútu og Barcelona 1:0 yfir í hálfleik.
Úrúgvæinn Luis Suárez innsiglaði síðan sigurinn á lokamínútu leiksins með sinni klassísku utanfótarafgreiðslu þegar hann var kominn einn gegn markverði, lokatölur 2:0.
Barcelona hefur 54 stig í toppsæti deildarinnar en á samt leik til góða á Atlético Madrid í 2. sæti sem hefur 51 stig.
Real Madrid hefur spilað jafn marga leiki og Barcelona, 22, en leikur í dag gegn Granada. Real Madrid hefur 47 stig.