Obafemi Martins til Kína

Obafemi Martins í leik með Seattle Sounders.
Obafemi Martins í leik með Seattle Sounders. AFP

Shanghai Shenhua í kínversku úrvalsdeildinni hefur fengið til sín nígeríska framherjann Obafemi Martins frá Seattle Sounders í MLS-deildinni.

Martins, sem er 31 árs gamall, var í janúar orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildinni en peningarnir í Kína heilluðu meira og er hann því mættur þangað.

Hann samdi við Shanghai Shenhua en hann mun mynda öfluga framlínu ásamt senegalska framherjanum Demba Ba. Þeir eiga það báðir sameiginlegt að hafa leikið með Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni.

Martins á að baki 41 landsleik fyrir Nígeríu og hefur hann skorað 18 mörk í þeim leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert