Eiður Smári Guðjohnsen var allt í öllu hjá Molde í 3:3 jafntefli liðsins gegn norska B-deildarliðinu Mjöndalen.
Eiður átti marga góða spretti í leiknum, lagði upp eitt mark og átti meðal annars skalla þar sem frákastið varð að marki.
Hér má sjá það helsta sem gerðist í leiknum.
Keppni í norsku úrvalsdeildinni hefst um aðra helgi og tekur Molde þá á móti Trömsö í 1. umferðinni en Aron Sigurðarson gekk í raðir Tromsö á sama degi og Eiður skrifaði undir samning við Molde.