Slær Buffon met í kvöld?

Gianluigi Buffon hefur leikið afar vel með toppliði Juventus í …
Gianluigi Buffon hefur leikið afar vel með toppliði Juventus í vetur. AFP

Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, getur skráð nafn sitt í sögubækurnar haldi hann marki sínu hreinu í leik liðsins gegn Sassuolo í kvöld.

Buffon hefur ekki fengið á sig mark í síðustu níu leikjum Juventus og það eru 836 mínútur síðan Buffon þurfti að hirða boltann úr neti sínu. Buffon er eins og sakir standa í þriðja sæti yfir lengstu hrinu markvarða í efstu deild í Ítalíu án þess að fá á sig mark.

Ef Buffon tekst að koma í veg fyrir að fá á sig mark á fyrstu 67 mínútum leiksins kemst hann upp fyrir Dino Zoff á fyrrgreindum lista. Ef Buffon nær svo að koma í veg fyrir að Sassuolo skori í leiknum öllum hrifsar hann metið af Sebastiano Rossi.

Rossi sem stóð á milli stanganna hjá AC Milan lék 929 mínútur án þess að hleypa skoti andstæðinganna fram hjá sér á tímabilinu frá 12. desember árið 1993 til 27. febrúar árið 1994.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert