Helmingslíkur á að við förum í úrslitin

Filipe Luis stöðvar hér Douglas Costa í leiknum í kvöld.
Filipe Luis stöðvar hér Douglas Costa í leiknum í kvöld. AFP

„Við erum mjög ánægðir en við vitum að þetta er ekki búið,“ sagði Felipe Luis varnarmaðurinn sterki í liði Atlético Madrid eftir 1:0 sigur gegn Bayern München í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld.

„Einvígið er galopið og ég myndi telja að það séu helmingslíkur á að við förum í úrslitin. Við vitum að heimavöllur Bayern er sterkur en við munum selja okkur dýrt til að komast í úrslitaleikinn. Það er draumur okkar. Eftir að við skoruðum markið sem var hreint út sagt frábært hjá Níguez þá féllum við svolítið til baka til að verja forystuna. Bayern fékk nokkur færi en okkur leið samt vel í vörninni,“ sagði Luis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert