Sturridge og Can byrja hjá Liverpool

Daniel Sturridge, framherji Liverpool.
Daniel Sturridge, framherji Liverpool. AFP

Daniel Sturridge er í byrjunarliði Liverpool sem mætir Villarreal í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Fyrri leikur liðanna fór 1:0 fyrir Villarreal á Spáni. 

Auk Sturridge snýr Þjóðverjinn Emre Can aftur í lið Liverpool eftir að hafa verið meiddur síðustu vikurnar.

Fylgst er með gangi mála í leiknum hér á mbl.is.

Lið Liverpool: Mignolet, Clyne, Lovren, Toure, Moreno, Can, Milner, Coutinho, Firmino, Lallana, Sturridge. 
Bekkur: Ward, Benteke, Lucas, Allen, Skrtel, Ibe, Smith.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert