Varane ekki með á EM

Raphael Varane í leik með franska landsliðinu gegn Rússum.
Raphael Varane í leik með franska landsliðinu gegn Rússum. AFP

Raphal Varane, varnarmaður Real Madrid og franska landsliðsins í knattspyrnu karla, verður ekki með í lokakeppni EM sem fram fer í Frakklandi í júní og júlí.

Varane tognaði aftan í læri á æfingu með Real Madrid á dögunum og nú er ljóst að meiðsli hans verða til þess að Didier Deschamps, þjálfari franska liðsins, ákvað að velja Varane ekki í leikmannahóp liðsins fyrir EM. 

Meiðsli Varane gætu ekki komið upp á verri tíma, en franski varnarmaðurinn mun einnig missa af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þar sem Real Madrid mætir nágrönnum sínum, Atlético Madrid. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert