Barcelona til Íslands

Lionel Messi, Neymar og Luis Suarez, leikmenn karlaliðs Barcelona.
Lionel Messi, Neymar og Luis Suarez, leikmenn karlaliðs Barcelona. AFP

Spænska stórveldið Barcelona, í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands, býður upp á sérstakar æfingabúðir í júlí hérlendis sem eru eingöngu ætlaðar stúlkum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá akademíunni.

Gæði íslenskrar kvennaknattspyrnu eru á heimsmælikvarða. Því leitar Barcelona nú til Íslands en félagið kom kvennaliði á fót í fyrra og leggur nú mikla áherslu á kvennaboltann. 

Reyndir þjálfarar félagsins munu þjálfa þátttakendur eftir æfingakerfi þeirra og miðla þekkingu sinni til íslenskra þjálfara um leið. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á æfingabúðir af þessum toga sem eru eingöngu ætlaðar stúlkum.

Æfingabúðirnar verða á Valsvellinum dagana 8. – 13. júlí. Þeim lýkur með hófi þar sem Carles Vilarrubí, varaforseti félagsins, verður viðstaddur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert