„Gamla frúin“ vill Mascherano

Javier Mascherano.
Javier Mascherano. AFP

Ítalíumeistarar Juventus, sem ganga undir viðurnefninu „gamla frúin“ eru á höttunum eftir hinum argentíska Javier Mascherano, leikmanni Barcelona, samkvæmt íþróttafréttamanninum Gianluca Di Marzio.

Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus, hrífst af fjölbreytileika Mascherano, en hann getur bæði spilað stöðu miðvarðar og varnartengiliðs. Mascherano vill yfirgefa Spán meðal annars vegna skattavandræða sem leikmaðurinn bakaði sér. 

Juventus, sem hefur verið ítalskur meistari fimm ár í röð, einblínir á Evrópumeistaratitil, en liðið beið lægri hlut gegn Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fyrra. Mascherano er reynslumikill og var hluti af Evrópumeistaraliði Barcelona og gæti hann því hjálpað Juventus að ná því markmiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert