Zlatan brosti sínu breiðasta – myndskeið

Zlatan Ibrahimovic var hress og kátur á blaðamannafundi í Stokkhólmi …
Zlatan Ibrahimovic var hress og kátur á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. AFP

Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic var spurður hvort Manchester United hefði gert honum tilboð um að leika með liðinu næsta vetur á blaðamannafundi í dag. Spurningin vakti mikla kátínu hjá Zlatan.

Zlatan sem sagðist nú þegar hafa gert upp hug sinn um næsta áfangastað sinn brosti sínu breiðasta og hló dátt áður en hann svaraði spurningu blaðamannsins eins og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert