Umboðsmaður pólska framherjans Roberts Lewandowskis hefur rætt við spænska stórliðið Real Madrid um möguleg félagaskipti hans þangað frá Bayern München en hann greindi frá þessu í gær.
Lewandowski hefur verið ótrúlegur fyrir framan markið frá því hann kom til félagsins frá Borussia Dortmund enn hann gerði 30 mörk á þessu tímabili.
Hann á enn þrjú ár eftir af samningi sínum við Bayern en umboðsmaður hans viðurkennir viðræður við Real Madrid.
„Real Madrid er búið að hafa samband og við höfum rætt hlutina okkar á milli. Þetta er mjög spennandi kostur fyrir hann,“ sagði umboðsmaðurinn.