Þrenna Viðars – myndskeið

Viðar Örn Kjartansson skoraði þrennu í dag.
Viðar Örn Kjartansson skoraði þrennu í dag. @Malmo_FF

Viðar Örn Kjartansson, framherji Malmö í Svíþjóð, gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk í 4:1 sigri á nýliðum Östersund í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en hann er nú kominn með átta mörk í ellefu deildarleikjum.

Viðar kom til Malmö frá Jiangsu Suning í Kína en hann hefur farið með mótið afar vel af stað. Hann er samtals kominn með 11 mörk í 17 leikjum í öllum keppnum og hefur verið öflugasti maður Malmö til þessa.

Hann var ekki valinn í 23 manna landsliðshópinn fyrir Evrópumótið í Frakklandi en hann er heldur betur að minna á sig. Hann er þó á lista yfir sex varamenn sem hægt er að kalla í ef einhver meiðist í hópnum.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin hjá honum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert