Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, og samherjar hennar í Portland Thorns eru áfram ósigruð í bandarísku atvinnudeildinni en 18 þúsund áhorfendur sáu liðið gera jafntefli, 0:0, við Seattle Reign í grannaslag á heimavelli í nótt.
Dagný lék allan leikinn á miðjunni hjá Portland og seint í leiknum bjargaði hún á marklínu úr einu besta færi gestanna.
Portland lék án sex bandarískra landsliðskvenna sem eru í landsliðsverkefni og stillti upp nokkrum nýliðum í leiknum.
Portland er eina taplausa liðið í deildinni en eftir sjö umferðir er Chicago Red Stars með 14 stig á toppnum, Portland og Washington Spirit eru með 13 stig hvort og Western New York og Orlando Pride eru með 12 stig hvort í efstu sætunum.