Jón Guðni Fjóluson er besti leikmaður Svíþjóðarmeistara Norrköping í knattspyrnu það sem af er tímabilinu samkvæmt samantekt dagblaðsins Norrköpings Tidningar.
NT skýrði frá því að Jón Guðni væri efstur í einkunnagjöf blaðsins fyrir fyrstu 12 umferðir úrvalsdeildarinnar, en hann er nú kominn í sumarfrí ásamt öðrum leikmönnum eftir leiki helgarinnar og keppni hefst á ný 9. júlí.
Þá var miðvörðurinn útnefndur maður leiksins í gær þegar Norrköping og Elfsborg skildu jöfn, 0:0, í gær en liðið er í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Malmö.
Jón Guðni kom til Norrköping frá Sundsvall í vetur en hann verður nú eini Íslendingurinn hjá liðinu því Arnór Ingvi Traustason hefur verið seldur til Rapid Vín. Hann átti að spila kveðjuleik sinn í gær en var hvíldur vegna smávægilegra meiðsla.