Lokar Simeone hringnum?

Diego Simeone, knattspyrnustjóri Atlético Madrid.
Diego Simeone, knattspyrnustjóri Atlético Madrid. AFP

Diego Simeone, knattspyrnustjóri spænska liðsins Atlético Madrid, er ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann haldi áfram þjálfun liðsins. Atlético tapaði fyrir grönnum sínum í Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardag, eftir vítaspyrnukeppni.

„Mun ég halda áfram með Atlético eða endar hringurinn hér? Ég þarf að hugsa mig um en það er eðlilegt að velta þessu upp eftir leiki eins og þennan,“ sagði Simeone eftir tapið á laugardag.

„Ég er stoltur af leikmönnum mínum, ég elska þá. Það er ljóst að þeir gáfu allt sitt í verkefnið og hafa alltaf gert það. Við hefðum getað orðið meistarar en náðum ekki að grípa tækifærið,“ bætti Simeone við en þetta er í annað skiptið á þremur árum sem Atlético tapar fyrir Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í knattspyrnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert