Nýtt KSÍ-merki í Portland

Ný útgáfa af merki Knattspyrnusambands Íslands sást í Portland í nótt þegar Dagný Brynjarsdóttir og samherjar í Portland Thorns gerðu þar markalaust jafntefli við Seattle Reign í bandarísku atvinnudeildinni.

Dagný birti mynd af merkinu á Twitter fyrir stundu þar sem hún þakkaði rúmlega 18 þúsund áhorfendum fyrir stuðninginn í leiknum, og sagði að það hefði verið gaman að sjá nýja fánann!

Færslu Dagnýjar má sjá hér fyrir neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert