Skoraði í sínum fyrsta landsleik

Daniel Alves með boltann í leiknum í nótt.
Daniel Alves með boltann í leiknum í nótt. AFP

Brasilía sigraði Panama, 2:0, í vináttulandsleik í knattspyrnu karla í nótt. Leikurinn fór fram í Denver í Bandaríkjunum.

Jonas, leikmaður portúgölsku meistaranna í Benfica, skoraði fyrra mark Brasilíu strax á annarri mínútu leiksins. Það var svo varamaðurinn Gabriel Barbosa sem innsiglaði sigur gulklæddra rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok. Þetta var fyrsti landsleikur hins 19 ára gamla sóknarmanns.

Miðjumaðurinn Kaka, sem var kallaður inn í hóp Brasilíumanna vegna meiðsla, brenndi af vítaspyrnu fimm mínútum fyrir leikslok.

Bæði lið undirbúa sig fyrir þátttöku í Ameríkubikarnum. Fyrsti leikur Brasilíu er næstkomandi sunnudag gegn Ekvador en Panama mætir Bólivíu á mánudaginn eftir viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert