Viðar með eitt af mörkum umferðarinnar – myndskeið

Viðar Örn Kjartansson á landsliðsæfingu.
Viðar Örn Kjartansson á landsliðsæfingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðar Örn Kjartansson hefur farið vel af stað með liði sínu Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á yfirstandandi leiktíð. Viðar Örn hefur meðal annars skorað tvær þrennur á skömmum tíma og skorað 8 mörk í 12 leikj­um.

Eitt markanna sem Viðar skoraði í 4:1 sigri Malmö gegn Östersund um helgina er á lista yfir fallegustu mörk umferðarinnar og það má sjá í myndskeiðinu hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert