Einn Lukaku ekki nóg fyrir Belgíu

Vincent Kompany missir af EM vegna meiðsla.
Vincent Kompany missir af EM vegna meiðsla. KIRILL KUDRYAVTSEV

Bræðurnir Romelu og Jordan Lukaku eru báðir í 23 manna landsliðshópi Belgíu fyrir EM í Frakklandi en hópurinn var tilkynntur í dag.

Eins og flestum er kunnugt leikur Romelu Lukaku fyrir Everton, en hinn 21 árs gamli Jordan, bróðir hans, spilar sem vinstri bakvörður fyrir Anderlecht.

Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City og belgíska landsliðsins, er frá vegna meiðsla og verður því ekki hluti af liðinu. Ekki var pláss fyrir Adnan Januzaj, leikmann Manchester United, í sterku liði Belgíu.

EM-hópur Belgíu:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert