EM-hópur Tékka í tilgangslausu myndbandi

Petr Cech fær á sig mark á Laugardalsvelli.
Petr Cech fær á sig mark á Laugardalsvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tékkneska landsliðið tilkynnti 23 manna landsliðshóp sinn fyrir Evrópumótið í Frakklandi með myndskeiði í dag. 

Lítið kemur á óvart í hópnum og eru stærstu nöfnin þeir Tomas Rosicky og Petr Cech, leikmenn Arsenal, á sínum stað í liðinu. Rosicky er þó í eldri kantinum en hann er mikilvægur leiðtogi fyrir þetta tékkneska lið.

Landsliðshópinn má sjá á meðfylgjandi myndskeiði:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert