Ögmundur í góðum höndum – myndskeið

Ögmundur Kristinsson í leik með íslenska landsliðinu gegn Póllandi.
Ögmundur Kristinsson í leik með íslenska landsliðinu gegn Póllandi. Ljósmynd/Lukasz Skwiot

Ögmundur Kristinsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, var í góðum höndum fyrir leik Hammarby gegn Gefle um helgina.

Leikmenn Hammarby leiddu mæður sínar inn á völlinn í tilefni mæðradagsins sem var á sunnuadginn. 

Mæðurnar höfðu góðu nærveru, en Hammarby hafði betur í leiknum með tveimur mörkum gegn einu. Þessa skemmtilegu uppákomu má sjá í myndskeiðinu hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert