Ronaldo efstur á listanum

Cristiano Ronaldo hefur staðið sig best af þeim leikönnum sem …
Cristiano Ronaldo hefur staðið sig best af þeim leikönnum sem leika í Evrópu í vetur. AFP

Cristiano Ronaldo er efstur á lista sem UEFA tekur reglulega saman þar sem frammistaða leikmanna sem leika í Evrópu er metin. Leikmenn eru flokkaðir eftir þeirri stöðu sem þeir spila og fá stig fyrir mismunandi þætti knattspyrnunnar eftir því hvaða stöðu þeir spila. 

Zlatan Ibrahimovic er í öðru sæti á listanum og Antoine Griezmann í þriðja sæti. Danny Drinkwater sem hlaut ekki náð fyrir augum Roy Hodgson, landsliðsþjálfara enska landsliðsins í knattspyrnu karla, fyrir lokakeppni Evrópumótsins er í áttunda sæti yfir enska leikmenn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert