Messi mun breyta ákvörðun sinni

Luis Suárez.
Luis Suárez. AFP

Luis Suárez, leikmaður Barcelona, telur að liðsfélagi sinn, argentíski snillingurinn Lionel Messi, muni hætta við að leggja landsliðsskóna á hilluna fyrir Argentínu.

„Ég er viss um að hann mun skipta um skoðun, en hvað sem hann gerir, þá verður hann enn þá sá besti frá upphafi,” sagði Suárez.

Messi sagði eftir tap Argentínu gegn Síle í úrslitaleik Suður-Ameríkubikarsins að hann væri hættur með landsliðinu.

„Þekkjandi Messi er ég fullviss um að hann hafi sagt þetta á augnabliki þar sem hann var leiður og hjálparvana. Það er algjör synd fyrir fótboltann að hann hafi tekið þessa ákvörðun, en ég er viss um að hann muni endurhugsa þetta og breyta um skoðun,“ sagði Suárez.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert