Montella tekur við AC Milan

Vincenzo Montella.
Vincenzo Montella. AFP

Hinn 42 ára gamli Vincenzo Montella er tekinn við starfi hins sögufræga félags AC Milan frá Ítalíu. 

Montello stýrði síðast liði Sampdoria en síðustu daga hafa sögusagnir þess efnis að hann væri að taka við AC Milan stigmagnast og urðu loks að veruleika í dag.

Montella gerir tveggja ára samning við Mílanóliðið, en hann hóf þjálfaraferil sinn hjá Roma árið 2011 er hann tók við liðinu af Claudio Ranieri.

Montella tekur við liðinu af Cristian Brocchi sem tók við liðinu á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert