Neymar framlengir við Barcelona

Neymar verður áfram hjá Barcelona.
Neymar verður áfram hjá Barcelona. AFP

Brasilíumaðurinn Neymar hefur bundið enda á vangaveltur um framtíð sína. Hann skrifaði í morgun undir nýjan samning við Barcelona sem mun halda honum hjá spænsku meisturunum í knattspyrnu til ársins 2021.

Neymar hafði verið orðaður við brottför frá Barcelona á síðustu vikum og mánuðum. Fyrir mánuði var fullyrt að Neymar ætti í samningaviðræðum við frönsku meistarana í París SG, þar sem hann átti að fylla skarðið sem Svíinn Zlatan Ibrahimovic skildi eftir sig. Nú er ljóst að Neymar fer ekki neitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert