Enginn hugsar um stuðningsmennina

Diego Maradona er svekktur.
Diego Maradona er svekktur. AFP

Argentínska knattspyrnugoðsögnin Diego Maradona varð fyrir miklum vonbrigðum með fyrirhuguð félagaskipti landa síns, sóknarmannsins Gonzalo Higuain.

Higuain hefur undanfarin tímabil leikið með ítalska liðinu Napoli. Hann er hins vegar við það að ganga í raðir Juventus og við það er Madardona, sem sjálfur lék með Napoli á 9. áratug síðustu aldar, ekki sáttur.

„Þetta Higuain-mál særir mig vegna þess að hann fer til beinna keppinauta. Samt er ekki hægt að kenna leikmanninum um,“ skrifaði Maradona á Facebook-síðu sína.

„Leikmaður ber ábyrgð á sjálfum sér en það eru ríku karlarnir sem græða mest. Enginn hugsar um stuðningsmennina,“ bætti Maradona við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert