Real Madrid eina félagið sem heillar

Pierre-Emerick Aubameyang á æfingu með Dortmund.
Pierre-Emerick Aubameyang á æfingu með Dortmund. AFP

Pierre-Emerick Aubameyang, leikmaður Borussia Dortmund í Þýskalandi, segir aðeins eitt lið geta fengið sig til að fara frá þýska liðinu, en það er spænska stórliðið Real Madrid.

Aubameyang, sem er 27 ára gamall, átti stórkostlegt tímabil með Dortmund á síðustu leiktíð en hann gerði 39 mörk í öllum keppnum.

Framherjinn knái var búinn að lofa afa sínum að hann myndi einn daginn spila fyrir Real Madrid en ásamt Real hafa nágrannar þeirra í Atletico áhuga ásamt Manchester City. Aubameyang segir Real Madrid eina félagið sem getur fengið hann til að yfirgefa Dortmund.

„Ég er ekki viss um að ég fari á þessu ári. Eina félagið sem getur fengið mig til að yfirgefa Dortmund er Real Madrid, en ef þeir hringja ekki þá fer ég ekki fet,“ sagði Aubameyang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert