Higuain kominn til Juventus

Gonzalo Higuain fagnar öðru marki sínu í leik Argentínu gegn …
Gonzalo Higuain fagnar öðru marki sínu í leik Argentínu gegn Venezúela í sumar. AFP

Félagsskipti Gonzalo Higuain frá Napoli til Juventus eru frágengin. Þetta staðfestir Napoli á Twitter-aðgangi liðsins. Heimildir herma að kaupverðið sé um 75 miljónir punda. Kaupin eru þriðju stærstu viðskipti knattspyrnusögunnar að nafnvirði. 

 Í sumar hefur forseti Napoli hefur þvertekið fyrir að Higuain sé á förum og sagt að hann væri svikari ef hann samþykkti samningstilboð Juventus. 

Gonzalo Higuain er 28 ára argentínskur framherji. Hann gekk í raðir Napoli frá Real Madrid árið 2013 og hefur skorað 71 mark í 104 leikjum og á síðasta tímabili sló hann markamet í ítölsku deildinni þegar hann skoraði 36 mörk yfir tímabilið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert