Barcelona bætir við sig Evrópumeistara

Andre Gomes, nýjasti leikmaður Barcelona með Josep Maria Bartomeu, forseta …
Andre Gomes, nýjasti leikmaður Barcelona með Josep Maria Bartomeu, forseta félagsins á Camp Nou. AFP

Barcelona sem varð tvöfaldur meistari, það er spænskur meistari og bar sigur úr býtum í spænska konungsbikarnum, í knattspyrnu karla festi í dag kaup á portúgalska miðjumanninum Andre Gomes, en hann gekk til liðs við félagið frá Valencia. 

Kaupverðið á þessum 22 árs gamla leikmanni er 35 milljónir evra, en gæti hækkað um 20 milljónir ef ákveðnir hlutir samkvæmt samningi milli félaganna ganga eftir. 

Gomes er fjórði leikmaðurinn sem Barcelona fær í sínar herbúðir í sumar, en áður höfðu frönsku varnarmennirnir Samuel Umtiti og Lucas Digne komið frá Lyon annars vegar og Paris St-Germain hins vegar. Þá er Denis Suarez kominn aftur til Barcelona eftir árs lánsdvöl hjá Villarreal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert